Beint í efni

Verslun/Vítamín og bætiefni/
Astaxanthin 4 mg Icelandic Harvest 60 hy

Astaxanthin 4 mg Icelandic Harvest 60 hy

16000060

Product information


Short description

Íslenskt Astaxanthin úr öflugum örþörungum Astax­ant­hin er gríðarlega öfl­ugt andoxun­ar­efni sem lengi hefur verið þekkt fyrir heilsueflandi eiginleika sína á mannslíkamann.

Description

Astax­ant­hin er gríðarlega öfl­ugt andoxun­ar­efni sem lengi hefur verið þekkt fyrir heilsueflandi eiginleika sína á mannslíkamann. Þetta efni hefur mikið verið rannsakað og sýna klínískar rannsóknir ýmis jákvæð áhrif fólgin inntöku. Astaxanthin er náttúrulegt karótínóíð sem finnst hvergi í eins ríku mæli og í örþörungum sem kallast Haematococcus pluvialis og hefur það að jafnaði mun meiri andoxunargetu en Astaxantin sem búin eru til með öðrum aðferðum. Astaxanthin frá Algalíf Algalíf er íslenskt fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á tilteknum örþörungum og vinna úr þeim hágæða Astaxanthin

Ræktun og framleiðsla fer fram í einangruðum ræktunarkerfum þar sem allir mengunarvaldar eru útilokaðir og eingöngu hreint íslenskt vatn er notað við framleiðsluna

Endurnýtanleg orka er notuð við framleiðsluna og flokkast hún sem sjálfbær iðnaður. Notkun: 1-2 hylki á dag með vatnsglasi. Ekki skal neyta meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Lyfjaapótekið mælir með að neytendur leiti álits læknis eða annars fagfólks áður en þeir ákveða inntöku á vítamínum eða fæðubótarefnum

Sérstaklega á þetta við um barnshafandi konur, konur sem eru með barn á brjósti, fólk sem er að glíma við sjúkdóma, tekur lyf að staðaldri eða hefur undirliggjandi sjúkdóma. Vítamín eru ekki ætluð til þess að lækna sjúkdóma eða koma í veg fyrir þá og fæðubótarefni eiga ekki að koma í stað hollrar og fjölbreyttrar fæðu

Geymist þar sem börn hvorki sjá né ná til.